Nokia C7 00 - Lykilorð

background image

Lykilorð

PIN- eða PIN2-

númer

(4-8 tölur)

Þessi númer koma í veg fyrir að SIM-kortið sé notað í leyfisleysi

eða eru nauðsynleg til að fá aðgang að tilteknum eiginleikum.

Hægt er að stilla símann þannig að hann biðji um PIN-númerið

þegar kveikt er á honum.

Ef númerin fylgja ekki með kortinu eða þú gleymir þeim skaltu

hafa samband við þjónustuveituna.

Ef þú slærð númerið rangt inn þrisvar sinnum í röð þarftu að

opna það með PUK- eða PUK2-númerinu.

PUK- eða PUK2-

númer

(8 tölur)

Slíkt númer er nauðsynlegt til að opna PIN- eða PIN2 númer.

Hafðu samband við þjónustuveituna ef þessi númer fylgja ekki

með SIM-kortinu.

IMEI-númer

(15 tölur)

Númerið er notað til að auðkenna gilda síma í símkerfinu.

Einnig er hægt að nota númerið til að loka stolnum símum, svo

dæmi sé tekið. Þú gætir einnig þurft að gefa Nokia Care-

þjónustuveri upp númerið.

Hægt er að sjá IMEI-númerið með því að hringja í *#06#.

Lásnúmer

(öryggisnúmer)

(minnst 4 tölur eða

stafir)

Númerið kemur í veg fyrir að síminn sé notaður í leyfisleysi.

Þú getur stillt símann þannig að hann biðji um lásnúmerið sem

þú hefur tilgreint.

Lykilorð 123

background image

Haltu númerinu leyndu og á öruggum stað, fjarri símanum.

Ef þú gleymir númerinu og síminn er læstur þarftu að leita til

þjónustuaðila. Þú gætir þurft að greiða viðbótargjald og

persónulegum upplýsingum í símanum kann að verða eytt.

Nánari upplýsingar fást hjá Nokia Care eða seljanda símans.